Skip to content

Omnom B týpan

Hæ og takk fyrir áhugann! 

Finnst þér best að eiga me-time á morgnana og vera í fríi á mánudögum?

Við erum að leita að manneskju sem er hvað hressust eftir hádegi og fram á kvöld. Viðkomandi þarf að geta unnið aðra hverja helgi og þriðjudaga til föstudaga frá síðdegi til lokunar í nýju ís- og súkkulaðiversluninni okkar. Í stuttu máli:

  
- 60-100% starf - önnur hver helgi - B vakt á virkum dögum - mánudagsfrí -

Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum 13. september 2020

Skrollaðu niður ef þú vilt vita meira

Við leitum að fólki sem elskar ís og súkkulaði. Ísbúð Omnom er nýtt blóm í frumkvöðlafyrirtækinu Omnom. Starfið er afgreiðslustarf og mun viðkomandi búa til ísrétti fyrir framan viðskiptavinina sem og segja þeim frá súkkulaðinu okkar. Ef þú ert jákvæður, stundvís, agaður og þjónustulipur einstaklingur sem átt auðvelt með að vinna með fólki þá langar okkur að heyra frá þér. Starfið er afgreiðslustarf, vaktirnar hefjast síðdegis og eru til lokunar á virkum dögum (nema mánudögum) og frá hádegi til lokunar aðra hverja helgi. Best væri að viðkomandi tæki vakt alla þriðjudaga - föstudaga en við erum opin fyrir hugmyndum frá góðu fólki. Í starfinu felst ábyrgð á að opna og loka versluninni. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok september eða eftir samkomulagi.
   

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með flæði dagsins
  • Undirbúningur á opnun verslunarinnar um helgar (áfyllingar og þrif)
  • Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við viðskiptavini
  • Að útbúa ísrétti fyrir framan viðskiptavini
  • Að kynna og segja frá súkkulaðinu okkar
  • Almenn afgreiðsla á kassakerfi
  • Þrif og tiltekt í verslun
   

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Stundvísi og dugnaður
  • Áreiðanleg og skipulögð vinnubrögð
  • Metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar 
  • Hæfni til að geta unnið undir álagi
  • Brennandi áhugi á súkkulaði og ís
  • Viðkomandi fær kennslu og þjálfun í Omnom fræðum
  • Viðkomandi þarf að geta afgreitt á íslensku
  • Reynsla af afgreiðslu- og/eða þjónustustörfum mikill kostur

Vinnutími:

  • U.þ.b. 16:30-22:30 á þriðjudögum til og með föstudögum
  • U.þ.b. 12:00-22:30 á á laugardögum og sunnudögum, aðra hverja helgi

Laun:

  • Til viðmiðunar má skoða Kjarasamninga VR og SA


Hvernig sæki ég um?
--> Athugaðu að við erum að auglýsa 5 mismunandi störf/vinnutíma
--> Endilega skoðaðu vel og tilgreindu hvaða starf/störf þú ert að sækja um

Til að sækja um starfið þarftu að

1. tilgreina hvaða starf/störf þú ert að sækja um, vinsamlega tilgreindu í subject line þegar þú sendir póstinn
2. skrifa stutt kynningarbréf um þig og afhverju þig langar að vinna hjá okkur eða afhverju við ættum að ráða þig
3. gefa okkur upplýsingar um tvo meðmælendur sem við getum hringt í
4. setja aðgengilega ferilskrá sem viðhengi
5. tilgreina hvenær þú gætir mögulega hafið störf

Athugaðu að við svörum ekki umsækjendum sem uppfylla ekki þessi fimm atriði. Öllum öðrum umsóknum verður svarað.

--> umsóknina ásamt fylgigögnum sendirðu á work @ omnomchocolate.com

Þú getur sent fyrirspurnir á hildur @ omnomchocolate.com ef þú óskar eftir nánari upplýsingum um starfið. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Hlökkum til að heyra frá þér!

Is this a gift? Send a card to the recipient - just leave your message in the note box below.

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now