Fara í efni

Aðferðin okkar

Kakótré

1. Ræktun

Kakótré vaxa í heitu og röku loftslagi, innan við 20 gráður frá miðbaug. Um fimm ára aldur byrja þau að bera ávexti.

Opinn kakóávöxtur

2. Uppskera

Kakóávextirnir eru tíndir af trénum og þegar þeir eru opnaðir má sjá um 20–30 kakóbaunir umluktar hvítu aldinkjöti.

Baunir í gerjun

3. Gerjun

Baunirnar eru látnar gerjast í aldinkjötinu sem umlykur þær. Ger og bakteríur brjóta aldinkjötið niður og þar byrjar bragð baunarinnar að myndast. Ferlið tekur fjóra til níu daga.

Baunir þurrkaðar í sólinni

4. Þurrkun

Algengast er að kakóbaunir séu þurrkaðar í sólinni í fimm til sjö daga. Baununum er dreift jafnt og þeim snúið reglulega svo þær þorni jafnt.

Poki með kakóbaunum

5. Flutningur

Eftir þurrkun eru kakóbaunirnar settar í strigapoka og fluttar í vöruhús víðs vegar um heiminn.

Ristun baunanna

6. Ristun

Við ristum baunirnar til að draga fram bragðeinkenni þeirra og auðvelda afhýðingu.

Brotnar baunir og hýði

7. Brot og afhýðing

Kakóbaunirnar eru settar í gegnum afhýðingarvél sem skilur hýðið frá kjarnanum. Kjarnann köllum við kakónibbu.

Kvörn

8. Mölun og fínmölun

Nibburnar eru fyrst grófmalaðar þar til þær verða að þykkum massa. Massinn er svo fínmalaður með sykri og öðrum hráefnum í allt að þrjár klukkustundir.

Súkkulaði temprað

9. Temprun

Við temprum súkkulaðið: bræðum það og kælum svo rólega á meðan við höldum því á hreyfingu. Það gefur súkkulaðinu gljáa og stökkleika þegar það kólnar.

Súkkulaðistykki

10. Njóttu

Omnomomnomomnomomnom omnomomnomomnomomnom.

Efst á síðu