Skip to content

Omnom Helgarflugur

Hæ og takk fyrir áhugann! 

Við erum að leita að hressum helgarflugum í afgreiðslustarf, í stuttu máli:

  
- hlutastarf - stuttar dagvaktir - hentar vel með skóla -

Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum 13. september 2020

Skrollaðu niður ef þú vilt vita meira

 

Við leitum að fólki sem elskar ís og súkkulaði. Ísbúð Omnom er nýtt blóm í frumkvöðlafyrirtækinu Omnom. Starfið er afgreiðslustarf og mun viðkomandi búa til ísrétti fyrir framan viðskiptavinina sem og segja þeim frá súkkulaðinu okkar. Ef þú ert jákvæður, stundvís, agaður og þjónustulipur einstaklingur sem átt auðvelt með að vinna með fólki þá langar okkur að heyra frá þér. Starfið er afgreiðslustarf, vaktirnar eru stuttar og um helgar, starfið hentar því vel með skóla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok september eða eftir samkomulagi.

   

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við viðskiptavini
  • Að útbúa ísrétti fyrir framan viðskiptavini
  • Að kynna og segja frá súkkulaðinu okkar
  • Almenn afgreiðsla á kassakerfi
  • Þrif og tiltekt í verslun
   

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Stundvísi og dugnaður
  • Áreiðanleg og skipulögð vinnubrögð
  • Metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar 
  • Hæfni til að geta unnið undir álagi
  • Brennandi áhugi á súkkulaði og ís
  • Viðkomandi fær kennslu og þjálfun í Omnom fræðum
  • Viðkomandi þarf að geta afgreitt á íslensku

Vinnutími:

  • Stuttar dagvaktir, starfið hentar vel með skóla
  • U.þ.b. 13:00 - 16:00/17:00 um helgar
  • 2 eða fleiri helgar á mánuði
  • Möguleiki á lengri vöktum um helgar sé þess óskað og seinni parts vöktum á virkum dögum.
  • Hluti af teymi, ekki ein/einn á vakt
    

Laun:

  • Til viðmiðunar má skoða Kjarasamninga VR og SA


Hvernig sæki ég um?
--> Athugaðu að við erum að auglýsa 5 mismunandi störf/vinnutíma
--> Endilega skoðaðu vel og tilgreindu hvaða starf/störf þú ert að sækja um

Til að sækja um starfið þarftu að

1. tilgreina hvaða starf/störf þú ert að sækja um, vinsamlega tilgreindu í subject line þegar þú sendir póstinn
2. skrifa stutt kynningarbréf um þig og afhverju þig langar að vinna hjá okkur eða afhverju við ættum að ráða þig
3. gefa okkur upplýsingar um tvo meðmælendur sem við getum hringt í
4. setja aðgengilega ferilskrá sem viðhengi
5. tilgreina hvenær þú gætir mögulega hafið störf

Athugaðu að við svörum ekki umsækjendum sem uppfylla ekki þessi fimm atriði. Öllum öðrum umsóknum verður svarað.

--> umsóknina ásamt fylgigögnum sendirðu á work @ omnomchocolate.com

Þú getur sent fyrirspurnir á hildur @ omnomchocolate.com ef þú óskar eftir nánari upplýsingum um starfið. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Hlökkum til að heyra frá þér!

Is this a gift? Send a card to the recipient - just leave your message in the message box below.

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now