Skip to content
Súkkulaði-karamellu gígar

Súkkulaði-karamellu gígar

Hinsegin dagar eru hafnir og við erum í stuði. Kjartan súkkulaðigerðarmaður bjó til ómótstæðilega súkkulaði-karamellu gíga sem fullkomið er að deila með vinum og vandamönnum. Við skiljum það samt mjög vel ef þú ákveður að deila þeim ekki.

Súkkulaði-karamellu gígar (12. stykki)

Innihald 

1 dós    niðursoðin mjólk

120 gr. Caramel + Milk frá Omnom

50 gr.   smjör

50 gr.   sykur

50 gr.   hveiti

2 egg

1 tsk    vanilludropar

1/4 tsk  lyftiduft

1/4 tsk  salt frá Saltverk

Aðferð

Karamella

Setjið dósina með niðursoðnu mjólkinni í pott með vatni sem nær alla leið yfir hana og sjóðið í ca. 3-4 klukkustundir. Passið að bæta við vatni eftir þörfum. Látið dósina síðan kólna í ca. 2-4 klukkustundir áður hún er opnuð.

Smákökur

Hitið ofninn í 180°c

Saxið súkkulaðið og bætið því í  hitaþolna skál ásamt smjörinu. Setjið skálina yfir pott með sjóðandi vatni og bræðið saman.

Setjið sykur, egg og vanilludropa í skál og þreytið saman. Bætið súkkulaðiblönduinni við og blandið vel saman.

Því næst er hveiti, lyftiduft og saltið sigtað saman og bætt við blönduna.

Setjið bökunarpappír á plötu og með matskeið setjið eina doppu af súkkulaðideigi (ca 3-4 cm á breidd). 

Passið að hafa 4 cm pláss á milli hverrar köku.  Bleytið teskeið og ýtið í miðjuna til að búa til lítinn gíg. 

Setjið 1 teskeið af karamellu ofan í gíginn og bakið í 8 til 12 mínútur. Stráið Sjávarsalti frá Saltveki  yfir og leyfið að kólna í minnst 10 mínútur. 

Njótið vel!

-Omnom teymið

Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now