Skip to content

Hrekkjavöku ís Omnom, varúlfurinn í Svartaskógi er komin aftur á boðstólinn.

Ísrétturinn er innblásin af hinni margrómuðu súkkulaðitertu frá Svartaskógi í Þýskalandi sem alla jafna inniheldur súr og sæt kirsuber, djúsí súkkulaðikökubotn sem Kirsh líkjör er dreypt yfir, þeyttum vanillurjóma og rifnu dökku súkkulaði til skrauts.

Okkar túlkun á bragðævintýrinu er mjúkur vanilluís, kirsuberjasúkkulaðisulta með ögn af balsamik ediki til að leika við bragðlaukana, mjúk súkkulaðibrownie og efsta lag ísréttarins er svo stökkur súkkulaðikexmulningur, toppaður með súkkulaðiskógi. Öll hráefni eru handunnin af pastry-chefinu okkar.

Þessi ævintýralegi ísréttur er fáanlegur fram að Hrekkjavöku og kemur í tveimur stærðum, miðstærð á 1290 kr. og stór á 1590 kr.

Þessi ísdesert er algjört ævintýri fyrir bragðlaukana sem aðeins Grimms bræðurnir hefðu getað búið til.

Is this a gift? Send a card to the recipient - just leave your message in the note box below.

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now