Skip to content
THE SQUIRREL

ÍKORNINN

Íkorninn hefur numið land!

Fyrir fimm árum síðan gerðum við hesilhnetu jólasúkkulaði þar sem íkorninn kom til sögu. Okkur þykir mjög vænt um þetta súkkulaði og langaði alltaf að bjóða upp á það aftur. Við erum því rosalega ánægð að koma með það aftur en núna sem ísrétt.

Við gerðum heslihnetu-súkkulaðismjör sem minnir soldið á Nutella nema aðeins betra og stráum svo yfir mulning úr dökku og mjólkur súkkulaði, búið til úr kakóbaunum frá Tanzaníu. Toppurinn er svo handgerður konfektmoli fylltur með karamellu og heslihnetukremi og ristaðri heslihnetu.

Bragðgóður ísréttur sem bætist við ævintýralega úrvalið í ísbúðinni okkar.

Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now