Skip to content

Omnom Helgarstjóri

Hæ og takk fyrir áhugann! 

Eru helgarnar þinn tími?
Við erum að leita að kletti til að vinna aðra hverja helgi í nýju ís- og súkkulaðiversluninni okkar, í stuttu máli:

  
- hlutastarf - heilar helgar - önnur hver helgi - hentar vel með skóla -

Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum 13. september 2020

Skrollaðu niður ef þú vilt vita meira

Við leitum að fólki sem elskar ís og súkkulaði. Ísbúð Omnom er nýtt blóm í frumkvöðlafyrirtækinu Omnom. Starfið er afgreiðslustarf og mun viðkomandi búa til ísrétti fyrir framan viðskiptavinina sem og segja þeim frá súkkulaðinu okkar. Ef þú ert jákvæður, stundvís, agaður og þjónustulipur einstaklingur sem átt auðvelt með að vinna með fólki þá langar okkur að heyra frá þér. Starfið er afgreiðslustarf, helst aðra hverja helgi en við erum opin fyrir hugmyndum frá góðu fólki. Í starfinu felst ábyrgð á að opna og loka versluninni. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok september eða eftir samkomulagi.
   

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með flæði dagsins
  • Undirbúningur á opnun verslunarinnar um helgar (áfyllingar og þrif)
  • Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við viðskiptavini
  • Að útbúa ísrétti fyrir framan viðskiptavini
  • Að kynna og segja frá súkkulaðinu okkar
  • Almenn afgreiðsla á kassakerfi
  • Þrif og tiltekt í verslun
   

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Stundvísi og dugnaður
  • Áreiðanleg og skipulögð vinnubrögð
  • Metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar 
  • Hæfni til að geta unnið undir álagi
  • Brennandi áhugi á súkkulaði og ís
  • Viðkomandi fær kennslu og þjálfun í Omnom fræðum
  • Viðkomandi þarf að geta afgreitt á íslensku
  • Reynsla af afgreiðslu- og/eða þjónustustörfum mikill kostur

Vinnutími:

  • Heilar helgarvaktir, starfið hentar vel með skóla
  • U.þ.b. 12:00-22:30 á á laugardögum og sunnudögum
  • Önnur hver helgi
  • Möguleiki á aukavöktum á virkum dögum sé þess óskað
    

Laun:

  • Til viðmiðunar má skoða Kjarasamninga VR og SA


Hvernig sæki ég um?
--> Athugaðu að við erum að auglýsa 5 mismunandi störf/vinnutíma
--> Endilega skoðaðu vel og tilgreindu hvaða starf/störf þú ert að sækja um

Til að sækja um starfið þarftu að

1. tilgreina hvaða starf/störf þú ert að sækja um, vinsamlega tilgreindu í subject line þegar þú sendir póstinn
2. skrifa stutt kynningarbréf um þig og afhverju þig langar að vinna hjá okkur eða afhverju við ættum að ráða þig
3. gefa okkur upplýsingar um tvo meðmælendur sem við getum hringt í
4. setja aðgengilega ferilskrá sem viðhengi
5. tilgreina hvenær þú gætir mögulega hafið störf

Athugaðu að við svörum ekki umsækjendum sem uppfylla ekki þessi fimm atriði. Öllum öðrum umsóknum verður svarað.

--> umsóknina ásamt fylgigögnum sendirðu á work @ omnomchocolate.com

Þú getur sent fyrirspurnir á hildur @ omnomchocolate.com ef þú óskar eftir nánari upplýsingum um starfið. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Hlökkum til að heyra frá þér!

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now