Ertu súkkulaðigrís? Við erum að leita að þér!
Við erum tilbúin að stækka teymið og erum að leita að réttu manneskjunni sem þarf að sjálfsögðu að búa yfir súkkulaðieldmóði!
Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um starfið, hæfniskröfur og umsóknarferlið.
Athugið að þetta er full staða og framtíðarstarf og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eftir samkomulagi.
Vinnsluteymi: Pökkun
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Númer eitt, tvö og þrjú pökkun á súkkulaði.
Jafnframt felst í starfinu almenn ræsting á vinnslu- og pökkunarrými.
Einnig eru tilfallandi verkefni í súkkulaðiframleiðslu sem og súkkulaðismökkun.
Hæfniskröfur:
Góð samskiptahæfni
Jákvæðni og framtakssemi
Sjálfstæð vinnubrögð
Vilji til að vinna sjálfstætt og í teymi
Rétt hugarfar til að vinna í starfi þar sem mikið er um endurtekningu
Æskilegt að þú hafir reynslu af sambærilegum störfum
Æskilegur aldur 20+
Umsóknir:
Umsóknarfrestur er til og með 26.01.20
Æskilegt er að þú getir hafið störf sem fyrst
í umsóknarbréfi þarf að fylgja kynningarbréf (af hverju viltu vinna hjá Omnom) og ferilskrá með mynd
Umsóknina á að senda á netfangið work @ omnomchocolate.com.
Einnig óskum við eftir símanúmerum meðmælenda.
Vinsamlegast setjið sem viðfangsefni (subject line): Umsókn fyrir Omnom: pökkun
Fyllsta trúnaðar verður gætt og öllum umsóknum verður svarað eftir að umsóknarfresti lýkur eða þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Hlökkum til að heyra frá þér!
Fyrirtækið:
Omnom er tæplega 7 ára gamalt frumkvöðlafyrirtæki sem sérhæfir sig í súkkulaðiframleiðslu.
Hjá fyrirtækinu vinna 20 manns, þar með talið eigendur þess.
Omnom rekur eigin verslun, selur súkkulaði í verslanir, bæði innanlands og erlendis
ásamt því að bjóða upp á heimsóknir í verksmiðjuna þar sem súkkulaðið leikur við bragðlaukana.
Vinnustaðurinn býður upp á lifandi og krefjandi störf.