Skip to content
JFDR X Omnom Chocolate

JFDR x Omnom

Jófríður Ákadóttir betur þekkt undir nafninu JFDR gefur út nýja EP plötu 8. nóvember næstkomandi. Smáskífan hefur fengið heitið Gravity og verður gefin út sem Matcha-Lime súkkulaðiplata frá Omnom. Inni í súkkulaðinu má finna kóða til að hala niður smáskífunni.

Í tilefni af útkomu smáskífunnar mun Jófríður halda einstaka tónleika og te athöfn í súkkulaðismiðju Omnom út á Granda á meðan tónlistarhátíðin Iceland Airwaves stendur yfir. Tuttugu heppnir einstaklinga eiga möguleika á vinna miða á þessi einstöku tónleika. Til þess að taka þátt þarf fólk að skrá sig á eftirfarandi síðu:jfdrcurrent.com/tea-ceremony.

Jófríður segir þetta um verkefnið. “Mig hefur lengi dreymt um að gera súkkulaðiplötu – að finna leið til þess að búa til tónlist og gefa út á annan hátt en gamli geisladiskurinn og vínyl platan bjóða upp á. Bæði súkkulaði og te eru fyrirbæri sem ég tengi við seremóníur eða athafnir, bæði eiga sögu og hafa kraftinn til að breyta líðan og stemningu – dálítið eins og tónlist. Ég er virkilega ánægð með að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni, samtvinningi hljóðs, bragðs, áferðar og myndlistar.”

Kjartan Gíslason, stofnandi Omnom og súkkulaðigerðarmaður tekur undir orð Jófríðar: ,,Við elskum að prófa nýja hluti og vinna með hæfileikaríku fólki eins og Jófríði. Við erum ótrúlega ánægð með útkomuna á Matcha-Lime súkkulaðiplötunni.” 

Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now