Skip to content
The Love Collection

Ástarlína Omnom

Ástin er í loftinu og umlykur allt. Ástarlína Omnom er núna fáanleg í glæsilegri gjafaöskju.

Tvö súkkulaði, tveir bragðtónar - svo ólík að í fyrstu virðist ekkert sameina þau. Eitt salt og eitt súrt. Tveir andstæðir pólar sem ná fullkomnlega saman, rétt eins litbrigði ástarinnar.

Sea Salted Toffee

Við elskum karamellusúkkulaði en að búa til hina fullkomu karamellu getur verið snúið. Við höfum leikið okkur með þessa uppskrift í langan tíma. Til að ná fram karamellubragðinu bökuðum við mjólkina í sólarhring eða þar til að hún tók á sig rjómakenndan karamellukeim sem minnir einna helst á Dulce de leche. Því næst stráðum við yfir súkkulaðið sjávarsalti frá Saltverk til þess að fullkomna bragðið sem við leituðum að. Útkoman er þessi karamellukenndi draumur, Sea Salted Toffee.

Lakkrís + Raspberry

Innblásturinn fyrir þetta sérstaka súkkulaði er ekki sóttur úr íslenskri náttúru eða úr framandi hráefnum, heldur af nammibarnum. En það er eitthvað algjörlega einstakt við þessa súru, söltu og sætu blöndu sem er með öllu leyti ómótstæðileg. Við möluðum lakkrísrót og þurrkuð hindber sem við síðan blönduðum saman við lífrænt kakósmjör og úr varð þessi magnaða blanda. Að lokum stráðum við extra mikið af hindberjum yfir til að fanga lakkrís de résistance!. Þetta er Lakkrís + Raspberry.

Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now