Skip to content
Omnom Winter Collection 2019

Vetrarlína Omnom 2019

Vetrarlínan í ár sækir innblástur sinn í íslenskar jólahefðir. Í faðmi veturkonungs yljum við okkur um hjartarætur með minningum liðinna jóla og sækjum okkur innblástur í matarhefðir, bragðtóna og venjur sem hringja inn jólin fyrir okkur.

Við viljum bjóða ykkur að njóta jólanna að hætti Omnom og upplifa uppáhalds vetrarsúkkulaðið okkar, sem svo sannarlega færir okkur jólaandann.

Dark nibs + Raspberry

Madagaskar kakó baunin á sérstakan stað í okkar hjarta. En hún er upphaf okkar, fyrsta ástin. Ást við fyrstu sín. Margslungnir, fíngerðir tónar og fislétt rauðberjabragðið gerir Madagaskar 66% súkkulaðið að einu stóru ástarævintýri fyrir bragðlaukana.

Líkt og hefðin er á jólum, vildum við einnig klæða súkkulaðið okkar í sparifötin.

Hátíðlega fagurrauð hindber með sinn sérstaka sæta keim, pöruð með vænlegu dassi af kakónibbum fullkomna pakkann. Nú er hátíð í bæ!

Milk + Cookies

Ó, elsku jólin. Það er ómögulegt að hugsa til jóla án þess að upp komi í hugann minning um glas af ískaldri mjólk og piparkökum. Við vildum ólm fanga þessa minningu og leituðum því til vina okkar hjá Brauð & Co til að aðstoða okkur við að búa til hina fullkomnu krydduðu smáköku.

Grunnurinn var unninn úr afgangs möndlum úr framleiðslunni okkar, tröllahöfrum og ríkulegu magni af engifer og kanil. Við lékum okkur með uppskriftina þar til jólaandinn sveif yfir okkur og fullkomnun var náð.

Smákökurnar liggja í ljúfum faðmi Madagaskar mjólkursúkkulaðis og saman er þetta par ósigrandi. Helgi Björns mun sko aldeilis nenna jólunum eftir eitt svona!

Spiced White + Caramel

Malt og Appelsín. Kryddað, maltað hvítt súkkulaði með appelsínuberki, kanil og stökkri karamellu. Þessi blanda kemur öllum í jólafíling.

Flestir Íslendingar halda fast í þessa ríkulegu hefð af hátíðlegri bragðupplifun, sem er engri lík. Við vildum fanga þessa hefð með okkar eigin hætti í einstöku súkkulaði og er sannkallaður óður okkar til jólanna.

Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now