Skip to content
Winter Collection

Gjafaaskja Omnom

wintercollection.jpgVetrarlína sækir innblástur sinn í íslenskar jólahefðir sem ylja landsmönnum um hjartarætur með minningum liðinna jóla. Omnom sækir innblástur í matarhefðir, bragðtóna og venjur sem hringja í jólinn.

Nú er Gjafaaskja Omnom komin út. Í henni má finna þrjár bragðtegundir liðinna ára sem færa okkur hinn sannkallaða jólaanda.

Dark nibs + Raspberry

Madagaskar kakóbaunin á sérstakan stað hjá Omnom en hún er upphaf fyrirtækisins. Margslungnir, fíngerðir tónar og fislétt rauðberjabragðið gerir Madagaskar 66% súkkulaðið að einu stóru ástarævintýri fyrir bragðlaukana. Líkt og hefðin er á jólum, vildum við einnig klæða súkkulaðið okkar í sparifötin. Hátíðlega fagurrauð hindber með sinn sérstaka sæta keim, pöruð með vænlegu dassi af kakónibbum fullkomna pakkann.

Milk + Cookies

Það er ómögulegt að hugsa til jóla án þess að upp komi í hugann minning um glas af ískaldri mjólk og piparkökum. Omnom vildi fanga þessari minningu og leitaði því til Brauð&co með hjálp við að búa til hina fullkomu krydduðu smáköku. Grunnurinn var unninn úr afgangs möndlum úr framleiðslunni Omnom, tröllahöfrum og ríkulegu magni af engifer og kanil. Smákökurnar liggja í ljúfum faðmi Madagaskar mjólkursúkkulaðis og saman er þetta par ósigrandi.

Spiced White + Caramel

Malt og Appelsín. Kryddað, maltað hvítt súkkulaði með appelsínuberki, kanil og stökkri karamellu. Þessi blanda kemur öllum í jólafíling. Flestir Íslendingar halda fast í þessa ríkulegu hefð af hátíðlegri bragðupplifun, sem er engri lík. Þetta súkkulaði er óður Omnom til jólanna.

Vetrarlína Omnom er einungis til í takömörkuðu upplagi, hægt er að kaupa gjafaöskju hér.

Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now