Skip to content
OMNOM X VISIT VATNAJÖKULL

OMNOM Í RÍKI VATNAJÖKULS

Komdu með bragðlaukana í ferðalag um Ríki Vatnajökuls í sumar og bragðaðu á ljúffengum Omnom réttum víðs vegar um svæðið. Í sumar ætla veitingaaðilar Ríkis Vatnajökuls að bjóða matgæðingum og súkkulaðiunnendum í sannkallað súkkulaðiferðalag þar sem að þeir bjóða upp á súkkulaðirétti úr hágæða súkkulaði frá Omnom.

- Café Vatnajökull

Omnom saltkaramellu súkkulaðibita kaka með kaffinu á Café Vatnajökull. Kaffihúsið er staðsett á Fagurhólsmýri og er ævintýri í sjálfu sér.

- Hótel Smyrlabjörg

Heimagerð súkkulaðikaka með Omnom súkkulaði á Hótel Smyrlabjörg. Smyrlabjörg er tilvalin staðsetning fyrir þá ferðlanga sem sækjast í nálægð við Vatnajökul, og geta fengið sér hádegismat fyrir eða eftir ferð á jökulinn.

- Brunnhóll

Heimagerður Jöklaís á Brunnhóli sem fæst nú líka í Omnom útgáfu. Brunnhóll er fjölskyldurekið gistihús sem leggur mikið upp úr persónulegri þjónustu.

- Ósinn á Hótel Höfn

Tartar úr Omnom súkkulaði með Jöklaís á Ósnum á Hótel Höfn. Ósinn er hlýlegur staður sem býður upp á gott úrval rétta úr úrvalshráefnum.

- Kaffi Hornið  

Omnom brownie á Kaffi Horninu á Höfn. Kaffi Hornið opnaði í maí 1999. Það er staðsett í hjarta Hafnar í Hornafirði og býður upp á fyrsta flokks hráefni úr héraði.

- Hafnarbúðin 

Hafnarbúðin er rótgróinn og líflegur „diner“ við höfnina á Höfn sem býður upp á skemmtilegan og fjölbreyttan matseðil í anda amerísks „diners“ með íslensku ívafi. Hafnarbúðin bíður upp á áhugaverðan "chilli con carne" rétt með Nicaragua súkkulaðinu okkar og svo sítrónuystingsköku með lakkrís- og hindberjasúkkulaðinu okkar.

- Ottó veitingahús og verslun 

Fallegur og vingjarnlegur staður með metnaðarfullan matseðil. Þau ætla að vinna með súkkulaðið frá okkur í allt sumar og skapa allskonar skemmtilega rétti.

- Pakkhúsið

Glóðvolgur Omnom súkkulaði ganache á Pakkhúsinu. Pakkhúsið leggur áherslu á hráefni úr héraði, bæði af landi og úr sjó. Humarinn kemur ferskur beint af bátunum sem landa við bryggjuna.

Ríki Vatnajökuls er stórbrotið svæði sem hefur að geyma magnaða íshella, töfrandi lón fyllt fljótandi ísjökum og jökultungur, sumar hverjar sem auðvelt er að nálgast. Við hvetjum ykkur til að heimsækja þetta magnaða svæði í sumar og njóta á þessum frábæru veitingastöðum hér að ofan.

Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now