SARAN ÍSRÉTTUR
Drottningar Sara með vanillukremi og kaffisúkkulaði
Karamelluseraðar heslihnetur í mokkasúkkulaði
Mandarínu-súkkulaðisósa
Í ár eiga allir einstaklega ljúffenga, gulli slegna hátíðar Söru skilið; Söru sem drottningu sæmir. Fyllt Madagaskar vanillukremi og böðuð upp úr kaffisúkkulaði. Sitjandi efst í hásæti sínu, ofan á ljúffengum ísrétti með ilmandi mandarínu-súkkulaðisósu og karamellu ristuðu heslihnetukrömbli, trónir hún á toppnum líkt og kóróna jólanna.
Saran er konungborinn óður okkar til jólanna. Lengi lifi Saran, lengi lifi ísdrottningin!
Njótið vel.
Saran er fáanleg í ísbúðinni okkar núna, yfir jólin og fram í nýja árið.