Íslenskar sumarnætur
Íslensk sumur eru engu lík. Sólarstrendurnar eiga ekki roð í íslenska sumarið. Eftir langan og dimman vetur er ótrúlegt þakklæti sem fylgir því þegar sólin lætur sjá sig og hver einasti sólargeisli er mikilvægur.
Allt breytist á sumrin, og allt verður fallegra, meira að segja illgresið svo ekki sé minnst á löngu sumarnæturnar. Þessar stundir eru dýrmætar og bestar í faðmi fjölskyldu og vina.
Njótið í botn!