Love Collection er komið út
Tvö súkkulaði, tveir bragðtónar - svo ólíkir að í fyrstu virðist ekkert sameina þá. Þegar nánar er litið er það einmitt það sem sameinar þau. Eitt salt og eitt súrt. Tveir andstæðir pólar sem ná fullkomnlega saman, rétt eins litbrigði ástarinnar.
Love Collection gjafaaskjan er komin út og er hin fullkomna gjöf fyrir Valentínusardaginn og konudaginn. Með hverri vefpöntun í vefverslun okkar, fylgir með ástarbréf sem þú getur skrifað á og gefið þeim sem þér þykir vænt um.
Gjafaaskjan er einungis til í takmörkuðu upplagi.
Sea Salted Toffee
Við elskum karamellusúkkulaði en að búa til hina fullkomu karamellu getur verið snúið. Við höfum leikið okkur með þessa uppskrift í langan tíma. Til að ná fram karamellubragðinu bökuðum við mjólkina í sólarhring eða þar til að hún tók á sig rjómakenndan karamellukeim sem minnir einna helst á Dulce de leche. Því næst stráðum við yfir súkkulaðið sjávarsalti frá Saltverk til þess að fullkomna bragðið sem við leituðum að. Útkoman er þessi karamellukenndi draumur, Sea Salted Toffee.
Lakkrís + Raspberry
Innblásturinn fyrir þetta sérstaka súkkulaði er ekki sóttur úr íslenskri náttúru eða úr framandi hráefnum, heldur af nammibarnum. En það er eitthvað algjörlega einstakt við þessa súru, söltu og sætu blöndu sem er með öllu leyti ómótstæðileg. Við möluðum lakkrísrót sem við síðan blönduðum saman við lífrænt kakósmjör og úr varð þessi magnaða blanda. Að lokum stráðum við extra mikið af hindberjum yfir til að fanga lakkrís de résistance! Þetta er Lakkrís + Raspberry.
Ný uppskrift
Omnom leggur ást og alúð í súkkulaðigerð sína, en í dag kemur út uppfærð uppskrift af súkkulaðistykkinu Lakkrís + Raspberry.
“Þegar Lakkrís + Raspberry kom út snemma á síðasta ári héldum við áfram að prófa okkur áfram með uppskriftina,” segir Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður og einn stofnenda Omnom. “Við prufuðum í einni lögun að fjarlægja hindberin úr uppskriftinni sjálfri og voila! Með því að leyfa lakkrísrótinni að njóta sín betur, varð til súkkulaði sem er mun bragðbetra og kremaðra,“ segir Kjartan og heldur áfram “Við ákváðum að halda þurrkuðum hindberjunum sem við sprinklum ofan á súkkulaði og útkoman er að okkar mati fullkomin.”