Skip to content
Spiced layered cake

Brúnkaka Kjartans

Það er óhætt að segja að aðventan eigi sérstakan stað í hjarta mínu og fyrir mér, eins og mörgum er aðventa skemmtilegri en jólin sjálf. Mig langaði að deila með ykkur nokkrum af mínum uppáhaldsuppskriftum sem ég sjálfur bý fyrir fyrir jólin.


Brúnkaka

250 g smjör

400 g púðursykur

4 stk egg

500 g hveiti

2 tsk lyftiduft

2 tsk matarsódi

2 tsk brúnkökukrydd

2 tsk kakóduft

150 gr mjólk

Krem:

600 g smjör

900 g flórsykur

2 eggjarauður

2-3 tsk vanilludropar

400 gr rabbarasulta

Aðferð

Hrærið smjör og púðursykur mjög vel í hrærivél.

Bætið einu og einu eggi út í og hrærið vel á milli.

Sigtið þurrefnin saman við og þynnið með mjólkinni.

Hrærið eins lítið og hægt er að komast af með, þannig að deigið verði samfellt.

Skiptið deiginu í 4 hluta og setjið á velsmurðar bökunarplötur með pappír , ca 2cm þykkt

Breiðið það jafnt yfir plöturnar með góðum spaða.

Bakið við 180-200° C, ca 10-15 mín eða þar til er kominn góður bökunarlitur.

Losið strax af plötunni og látið á sykurstráðan pappír.

Kælið vel áður en kremið er sett á.

Smyrjið kreminu jafnt á og leggið næsta ofan á og síðan hvert lagið af öðru. Sumum finnst gott að smyrja sultu á eitt lagið, annað hvort yfir smjörkremið eða að hafa aðeins sultu á einu laginu.

Skerið kökuna í 4 hluta og snyrtið hliðarnar.

Berið fram eða pakkið í plastfilmu, kakan geymist vel í kælir í 2 vikur eða í frysti í 3 mánuði

Krem:

Hrærið lint smjörið og flórsykurinn vel saman

Bætið í eggjarauðunum og vanilludropunum og hrærið vel.



Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now