Skip to content
Welcome back Mr. Carrots!

Okkar ástkæri Mr. Carrots!

Uppáhalds kanínan okkar snýr loksins aftur eftir tæplega árs fjarveru, sem hann eyddi afar íhugull fjarri amstri borgarlífsins. Hann segist hafa fundið lausn við meintum gulrótavanda heimsins og að þökk sé djúpri hugleiðslu sinni sé hann nú bragðbetri en nokkru sinni fyrr.

Þar sem einungis er rúmlega mánuður til páska hefur hann ákveðið að gefa kost á sér í sérstakri sælkeraforsölu á netinu frá og með deginum í dag, fram til 8. mars næstkomandi.

Mr. Carrots vill einnig ítreka að um afar takmarkað upplag er að ræða, og því mælir hann með því fyrir áhugasama að grípa gulrótina við fyrsta mögulega tækifæri.

Enn sem áður er honum meinilla við öll ferðalög, enda einstaklega “fótafúinn” kanína og óskar hann því eftir því að allar pantanir séu sóttar í verslun Omnom að Hólmaslóð 4 út á Granda frá og með 9. mars.

Þann 9. mars fer Mr. Carrots í sölu í verslun okkar en einnig verður hægt að panta kanínuna á netinu á meðan birgðir endast. 

Older Post
Newer Post

Is this a gift? Send a card to the recipient - just leave your message in the message box below.

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now