Skip to content
Winter Collection 2022

Vetrarlína Omnom 2022

Vetrarlína Omnom sækir innblástur í íslenskar jólahefðir sem ylja landsmönnum um hjartarætur með minningum liðinna jóla.

Listaverkið sem prýðir umbúðirnar í ár er eftir listakonuna Jorinde og er málað með olíu á striga og er vísun í ljósaskiptin í vetrardýrðinni. 

Í gjafaöskjunni má finna:

Dark Nibs + Raspberry

Madagaskar kakóbaunin á sérstakan stað í okkar hjarta. En hún er upphaf okkar, fyrsta ástin. Líkt og hefðin er á jólum, vildum við einnig klæða súkkulaðið okkar í sparifötin.Hátíðlega fagurrauð hindber með sinn sérstaka sæta keim, pöruð með vænlegu dassi af kakónibbum fullkomna pakkann. 

Milk + Cookies 

Það er ómögulegt að hugsa til jóla án þess að upp komi í hugann minning um piparkökur og glas af ískaldri mjólk. Við vildum ólm fanga þessa minningu Við lékum okkur með uppskriftina þar til jólaandinn sveif yfir okkur og fullkomnun var náð. Í smákökunni má finna hafra, appelsínubörk og ríkulegt magn af engifer og kanil. Til að toppa bragðið, má finna dass af cayenne pipar. Smákökurnar liggja í ljúfum faðmi Madagaskar mjólkursúkkulaðis og saman er þetta par ósigrandi. 

Spiced White + Caramel

Appelsínur og malt. Malt og Appelsín. Kryddað, maltað hvítt súkkulaði með appelsínuberki, kanil og stökkri karamellu. Þessi blanda kemur öllum í jólafíling. Flestir Íslendingar halda fast í þessa ríkulegu hefð af hátíðlegri bragðupplifun, sem er engri lík. Við vildum fanga þessa hefð með okkar eigin hætti í einstöku súkkulaði sem er sannkallaður óður til jólanna.


Kaupa vetrarlínu Omnom


Older Post
Newer Post

Shopping Cart

Your cart is currently empty

Shop now